Hænurnar

Hænurnar

01.11.2008 09:40:19 / Hæna5

Spilakvöld laugardaginn 15. nóvember

Næsti hittingur verður eins og við allar vitum: með mökum - hjá mér - laugardaginn 15. nóv.

Hvað segið þið bara um að hittast kl. 21:00 og hver og einn kemur með sína drykki (sko þeir sem vilja drekka e-ð áfengt) en ég get séð um gos: Kók, Pepsi Max, Kristal, Mix (bíðið við eru einhverjar fleiri sérþarfir sem ég er að gleyma - ha ha ha).

Ég á Partý og co. (nýja og gamla), pictionary (og gæti kannski fengið flettitöflur að láni og við teiknað á þær) og svo á ég Jungle Speed og Sequence. Ef þið kunnið einhver fleiri skemmtileg spil og eigið þau/hafið aðganga að þeim þá er um að gera að mæta með þau og kenna okkur hinum.

Hlakka til að sjá ykkur öll.

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.10.2008 13:50:01 / Hæna3

Saumó

Sælar mínar kæru...

Er búin að skoða hjá mér dagatalið...og ég legg til að ég haldi saumaklúbb á næsta mánudagskvöld...eða fimmtudagskvöldið í næstu viku. 
Hver er stemningin fyrir??? hvað passar ykkur best?
Hildur Ýr, innilega til hamingju með nafnið á prinsinum. Ég hlakka ógurlega til að hitta hann!
Endilega látið í ykkur heyra... hlakka til að hitta ykkur.
Kveðja, Helga Jóna.

» 9 hafa sagt sína skoðun

19.10.2008 17:55:00 / Hæna4

Og drengurinn heitir....

KOLBEINN:)

Takk fyrir gjöfina elsku hænurnar mínar... og Rósa og Hanna ...TAKK FYRIR ALLA HJÁLPINA!!! ÞIÐ ERU SNILLINGAR OG HJÁLPIN ÓMETANLEG!!!

Hlakka til að hittast bráðlega... var komin dagsetning á klúbb??

Kveðja
HÝH


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.10.2008 15:14:16 / Hæna5

Spilakvöld 15. nóvember

Ég átti eftir að koma því til ykkar að þann 15. nóv. eru flestar okkar lausar og hef ég því ákveðið að halda spilakvöld þá. Ég vona að sem flestar komist (endilega látið vita). Börn á brjósti eru velkomin með :p.

Kv. Ragna


» 10 hafa sagt sína skoðun

12.09.2008 12:46:47 / Hæna3

Kjúklingasalatið hennar Hönnu

Sælar allar saman...
Er einhver sem er með uppskriftina hennar Hönnu, af hinu sívinsæla Kjúllasalati?
Kannski þú Hanna?  Mig langar ógurlega að fá aftur uppskriftina!
Bestu kveðjur, Helga Jóna :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.09.2008 08:59:15 / Hæna5

Spilakvöld

Takk fyrir síðast. Ég er búin að skrá á dagatalið mitt spilakvöld heima hjá mér laugardaginn 25. október (auðvitað með mökum (eða vini - hí hí hí)). Takið kvöldið frá og endilega ef þið fréttið af góðu spili fram að þessum tíma þá látið mig vita ef því eða komið okkur hinum ánægjulega á óvart. Annars verður á m.a. dagskránni að spila Party og co. og Jungle Speed.

kv. Ragna

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.08.2008 21:50:08 / Hæna1

Saumó

Sælar stúlkur

Það er aldeilis langt síðan ég skrifaði hér síðast.  
En eins og þið ættuð allar að vita þá er saumó hjá mér á fimmtudaginn 4. sept. Er það ekki vanalega um 20:30. 
Ég er búin að fá svar frá öllum nema Helgu Jónu. Vona að þú komist. 
Hildur vonandi verður þú nógu frísk til að koma líka:)

Hlakka til að hitta ykkur,

Kveðja frá Hænu1

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.08.2008 17:45:33 / Hæna6

Mamma mia

Ég, Ragna og Hanna vorum að tala um að fara á myndina í næstu viku. Við vorum að spá í miðvikudag eða fimmtudag, hvort hentar ykkur betur?

Við vorum líka að spá í að hafa þetta allsherjar konubíóferð og draga með okkur mömmur, systur, mágkonur, vinkonur eða aðrar sem ekki hafa séð myndina.

» 5 hafa sagt sína skoðun

21.07.2008 08:23:55 / Hæna4

Saumó í ágúst:)

Hvað segið þið um saumó í ágúst áður en þið byrjið að vinna aftur?? Ég er á leiðinni í sumarfrí eftir þessa viku og eftir það tekur síðan alvaran við8|

Hvaða dagur hentar best??

Kveðja

» 5 hafa sagt sína skoðun

30.06.2008 13:54:17 / Hæna2

Saumó 8. júlí

Er á leið í sveitasæluna á Flúðum og verð fram að helgi. Hvað segið þið um að hafa saumó hjá mér þriðjudaginn 8. júlí kl.20? :d

» 2 hafa sagt sína skoðun

11.06.2008 13:31:11 / Hæna5

Takk fyrir síðast

Hvað segið þið, hvenær er næsti hittingur?

» 5 hafa sagt sína skoðun

14.04.2008 15:26:35 / Hæna2

Boðskortin farin af stað :-)

Jæja sætu stelpurnar mínar.
Ég var að koma boðskortunum í póst í dag og vona að þetta skili sér nú til ykkar sem fyrst. Það væri bara flott ef þið sem ekki komist látið mig vita. Þið getið bara commentað hér. Því miður kemst Rósa ekki :cry: þar sem hún er í Ameríkunni á þessum tíma. 
Ég vona svo sannarlega að þið hinar komist.
Brúðkaupið er 7. júní kl.16.
Hænukveðja...
Hanna


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.03.2008 07:11:14 / Hæna2

Fer ekki að koma tími á saumó?

Hæ, hæ. Mig langar svo svakalega að fara hitta ykkur þar sem ég missti af síðasta hænu hitting. Hvað segið þið?

» 15 hafa sagt sína skoðun

02.03.2008 18:22:28 / Hæna5

Takk fyrir síðast

Takk fyrir síðast og frábæra skemmtun. Við skemmtum okkur mjög vel og hlökkum til næsta spilakvölds.

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.02.2008 14:20:14 / Hæna3

útsala á barnafötum...

Sælar, vildi bara láta vita að það er 50% afsláttur af sætu barnafötunum hjá okkur í Nálinni. Það ættu allir að geta gert góð kaup á börnin, í afmælisgjafir eða sængurgjafir!
Annað er það, að ég verð því miður að aflýsa mér og mínu eiginmanni þann 1.mars.  Það er árlegt kvennakvöld hjá Fáki, þar sem við fórum í fyrra og var ákveðið að við færum allar aftur...og það var víst akkúrat þann 1. mars. Svo var ég að byrja í kór sem á e.t.v. að syngja þarna líka!
Vonandi kemst ég bara næst... en svo fer líka að styttast í að ég haldi saumó!

Bestu kv. Helga Jóna.

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15